SÓLEY - Langtímaáhrif loftslagsbreytinga á plöntur og gróður á Íslandi
Meðal vísindamanna er vart um það deilt lengur að jörðin er að hlýna, aðallega vegna athafna mannsins. Loftslagsbreytingar verða líklega mestar á háum breiddargráðum og því er spáð aðframundir miðja 21. öld muni hlýna um ≥0,2°C á áratug á Íslandi.
Fenólógískar breytingar (þ.e. átímasetningu þroskunarfræðilegra atburða), ekki síst í blómgun plantna, eru taldar einn næmasti líffræðilegi mælikvarðinn á hnattræna hlýnun. Breytingar á blómgunartíma geta haft áhrif á dreifingu auðlinda innan plöntunnar, framlag til vaxtartengdra þátta, samkeppni um frjóbera, skörun á dreifingartíma vinddreifðra frjókorna, afrán á blómum, aldinum og fræjum og breytta nýliðun í kjölfar áhrifa á fræframleiðslu og lífvænleika fræja.
Markmið verkefnisins var að greina og skilja áhrif loftslagsbreytinga á plöntur og gróður á Íslandi. Fyrri hluti verkefnisins, sem sneri að áhrifum á blómgunartíma plantna, hófst sumarið 2009.
Fylgst var með blómgun níu tegunda ávöldum svæðum sem endurspegla breytileika í veðurfari og lengd vaxtartíma. Níu algengar tegundir höfðu verið valdar en á hverju svæði var fylgst með ca. 3 - 9 tegundum. Blómgun var skráð eftir samræmdri aðferðafræði á 3.-4. daga fresti þar til aldinmyndun hófst.
Verkefnið lagði til mikilvægar upplýsingar í gagnagrunn um lífríki Íslands, sem gefur möguleika á samanburði við hliðstæðar erlendar rannsóknir. Verkefnið skilaði þekkingu á náttúrufari og þróun þess heim í hérað og varð áhugaverður efniviður í fræðslu t.d. í þjóðgörðum, grunn- og framhaldsskólum og fyrir ýmis rannsóknaverkefni á háskólastigi.
Samstarf: Háskóli Íslands og Landgræðsla ríkisins
Fjármögnun: Umhverfis - og orkusjóður OR styrkti verkefnið
Verkhópur:
Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor í grasafræði
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, SSf
Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins
Verkefnisstjóri:
Þóra Ellen Þórhalssdóttir, prófessor